Færsluflokkur: Svifryk
Sterkir vindar í morgunsárið valda háum styrk svifryks þennan morguninn, auk umferðar.
Þessi mynd er fengin frá loftgæðamælistöðinni við Grensásveg.
Svolítill vindur hjálpaði mikið upp á loftgæðin þessi áramótin, bæði á Grensás (graf hér að neðan og Hvaleyrarholti).
Hæðsta gildi var "aðeins" 350 micro-g/m3 - hefur náð yfir 2000 micro-g/m3.
Nokkur vindur var sem lækkar styrkinn, og einnig er mögulegt að minna hafi verið skotið.
Gleðilegt nýtt ár !
Enn sólríkt, þurrt og vindasamt á suðurlandi og því kjöraðstæður fyrir ösku-og sandfok.
Mynd tekin kl.13:05 þann 20. desember 2010.
Mynd tekin kl. 13:20 þann 20. desember 2010.
Vindasamt og mikið af ryki að fjúka í gær.
Meðaltalið (hrá gögn) var 234 micro-g/m3, hæðsta gildi 1369 micro-g/m3, sem er með því hæðsta á árinu.
Í næsta hefti Náttúrufræðingsins birtist grein eftir mig, Þorstein Jóhannsson, Sigurð B. Finnsson og Önnur R. Böðvarsdóttur um svifryksmengun um áramót í Reykjavík.
Ágrip. Svifryksmengun í Reykjavík um áramót mælist margfalt meiri en dæmigerð hámarksgildi yfir árið (~100 µg/m3, 30-mín gildi). Áramótin 2005/6 mældist styrkurinn til dæmis 2.374 µg/m3 (30-mín. gildi) við gatnamót Langholtsvegar og Skeiðarvogs. Sterkir vindar og úrkoma hafa veruleg áhrif til að draga úr styrk svifryksmengunar og breytingar á vindátt, jafnvel í hægviðri, geta leitt til flókinna tímaraða. Enda þótt styrkurinn verði mjög hár eru þessir atburðir undantekningarlítið skammvinnir.
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- ThrosturTh.wordpress.com Blogg á íslensku sem tekur við af þessu - meðan ekki gengur að nota þetta.
| Nóv. 2025 | ||||||
| S | M | Þ | M | F | F | L |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | ||||||
| 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
| 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
| 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
| 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
| 30 | ||||||
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar








apalsson
gattin
vulkan
hoskibui
svatli




